English (United Kingdom) Icelandic(IS)
Bergstaðastræti að sumarlagi.

Hvítur köttur leggur í ævintýraför.

Einn af hverfisköttunum.

Hallgrímskirkja gnæfir yfir Skólavörðustígnum.

Í sólskini eru ekki allir kettir eins á lit.

Kötturinn hugsar sitt - og við fylgjum!

Gengið um Óðinsgötu að sumarlagi.

Menningarnótt 2003 - fjöldi í menningargöngu.

Staldrað við á Nönnugötu.

Ungir sem aldnir fylgjast með af athygli.

...Bjarnar leitað - köttur í bóli!...

Birna.is

 Óvissuferðir …. í fótspor kattarins

Miðborg Reykjavíkur býr yfir ýmsu áhugaverðu, bæði fallegu, skrítnu og skondnu. Tilvalið er að hefja heimsókn í bæinn, hvort heldur utan- eða innanbæjar frá, með gönguferð. Menningarfylgd Birnu ehf býður upp á labbitúr í fótspor miðbæjarkattanna sem þekkja hverfið hvað best. Spjallað og rölt um söguslóðir bæjarins, litið inn á vinnustofur og verkstæði sem víða leynast. Bakhús og skuggasund geta leitt á áður óþekktar slóðir. Óvæntar uppákomur  Njótið miðborgarinnar og þess sem hún hefur upp á að bjóða!

Menningarrölt um miðbæinn sem upphaf að góðra vina fundi yfir kaffibolla, vínglasi eða málsverði - klikkar ekki !!!

Komið sjálfum ykkur - og vinunum - á óvart! Og - látið litlu fröken Reykjavík koma ykkur á óvart!

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


 

 

 

Árið 2009 kom út ljóðabókin Birna þó eftir Birnu Þórðardóttur. Bókin inniheldur ljóðabálkinn Ástarsvítu auk annarra ljóða, þar á meðal á ensku, norsku og ítölsku.

Þetta er önnur ljóðabók höfundar, en sú fyrri Birna/birna kom út fyrir nokkrum árum og er ófáanleg í dag.

Birna þó fæst hjá Menningarfylgd Birnu og Fiskbúðinni á Freyjugötu 1.
Verð: 1.500 kr. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
 
Menningarfylgd Birnu    birna@birna.is    s:862 8031