Miðborg Reykjavíkur býr yfir ýmsu áhugaverðu, bæði fallegu, skrítnu og skondnu. Tilvalið er að hefja heimsókn í bæinn, hvort heldur utan- eða innanbæjar frá, með gönguferð. Menningarfylgd Birnu ehf býður upp á labbitúr í fótspor miðbæjarkattanna sem þekkja hverfið hvað best. Spjallað og rölt um söguslóðir bæjarins, litið inn á vinnustofur og verkstæði sem víða leynast. Bakhús og skuggasund geta leitt á áður óþekktar slóðir. Óvæntar uppákomur Njótið miðborgarinnar og þess sem hún hefur upp á að bjóða!
Menningarrölt um miðbæinn sem upphaf að góðra vina fundi yfir kaffibolla, vínglasi eða málsverði - klikkar ekki !!!
Komið sjálfum ykkur - og vinunum - á óvart! Og - látið litlu fröken Reykjavík koma ykkur á óvart!
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.