|
Vestmannaeyjadömur í menningarreisu Menningarferð okkar var ákaflega vel heppnuð. Fyrir utan gönguna með Birnu heimsóttum við kaffihús og steikhús, fórum í baðstofuna í LaugumSpa og í kokteil, sáum Edith Piaff og skoðuðum Þjóðminjasafnið. Þar að auki var samveran í sjálfu sér heilt prógram. Það er samdóma álit þeirra sem ég hef spurt að gangan hafi verið einn af hápunktum ferðarinnar. Leiðsögumaðurinn fróður, sagði skemmtilega frá og tengdi vel saman gamla tímann og daginn í dag. Þarna uppgötvuðu sumar nýjar götur og sáu höfuðborgina í nýju samhengi. Það er frábært að eiga kost á slíkri leiðsögn í henni Reykjavík, því hún er ekki öll þar sem hún er séð! Þakk fyrir okkur! Guðný |










