Menningarfylgd Birnu ehf
Markmið fyrirtækisins er að veita erlendum gestum í Reykjavík sem og Íslendingum persónulega en jafnframt fræðandi nálgun á Reykjavík og menningu hennar í sem víðustum skilningi þess hugtaks. Menning Reykjavíkur spannar vítt svið: listasöfn, leikhús, Gamla kirkjugarðinn, bókasöfn, fiskbúðir, sundlaugar, hönnuði, vinnustofur listamanna, kaffihús og veitingastaði að ógleymdu því er mestu varðar, einstaklingana er byggja borgina. Betra en ekki er að feta í fótspor kattarins og þræða leyndar slóðir. Kötturinn þekkir bestu staðina fyrir utan það að hafa níu líf!
Leitast er við að kynna hið sérstæða í menningu borgarinnar á jákvæðan hátt, þannig að gestir fái löngun til að heimsækja borgina oftar en einu sinni eða tvisvar.
Birna
Birna Þórðardóttir er eigandi og starfsmaður Menningarfylgdar Birnu ehf. Með Birnu hafa gestir möguleika til að upplifa miðbæ Reykjavíkur á einstakan hátt, nálega að hætti kattarins. Líta leynda staði, bragða, horfa og skynja það sem gerir Reykjavík að óvenjulegum og eftirsóknarverðum stað. Þekking á sögu lands og þjóðar, tengsl við flóru mannlífs, líf og list miðbæjarins eru forsendur sem setja punktinn yfir i-ið í ferð með Birnu.