English (United Kingdom) Icelandic(IS)
Bergstaðastræti að sumarlagi.

Hvítur köttur leggur í ævintýraför.

Einn af hverfisköttunum.

Hallgrímskirkja gnæfir yfir Skólavörðustígnum.

Í sólskini eru ekki allir kettir eins á lit.

Kötturinn hugsar sitt - og við fylgjum!

Gengið um Óðinsgötu að sumarlagi.

Menningarnótt 2003 - fjöldi í menningargöngu.

Staldrað við á Nönnugötu.

Ungir sem aldnir fylgjast með af athygli.

...Taktu köttinn til fyrirmyndar - lentu standandi!...

Athugasemdir gesta
Kannski árviss viðburður ...

Sæl Birna

Ég vil fyrir hönd Kultursamligheden þakka fyrir eftirminnilegan göngutúr. Við höfðum afskaplega gaman af þessu og munum  örugglega nýta okkur þjónustu Menningargöngu Birnu aftur,  Kannski verður þetta að árvissum viðburði í félaginu, hver veit!

Anna Sigga

 
Dömur í skýjunum

Kæra Birna

Dömurnar eru í skýjunum yfir þessari ferð, enda ekki við öðru að búast er þú att í hlut.

Fyrir hönd allra í DejaVú - hópnum viljum við þakka þér þúsundfalt fyrir frábæra ferð niður Þingholtin.

Með virðingu og bestu kveðjum!

Kiddi B

 
Miðbæjarröltið var frábært ....

Það er samdóma álit allra sem þátt tóku, að miðbæjarröltið undir þinni fylgd hafi verið frábær, fræðandi og lífleg skemmtun.

Þakk fyrir okkur!

Starfsfólk Jóhanns Ólafssonar & Co ehf.

 
Starfsmenn Línuhönnunar alsælir

Sæl Birna og takk fyrir síðast

Við vorum alsæl með fylgdina svo það er aldrei að vita nema það verði haft samband við þig seinna!

Rannveig María, Línuhönnun

 
Skúmaskotin heilla

Sæl Birna

Gönguferðin var frábær og ég held að ekkert okkar eigi eftir að ganga um götur Reykjavíkur á sama hátt og áður. Munum eflaust þekkjast úr þar sem við verðum örugglega hnusandi í öllum skúmaskotum!

Við þökkum kærlega fyrir okkur, Hjördís og félagar

 
Börnin á Mánakoti á leikskólanum Sjónarhóli ánægð

Við vorum mjög ánægðar með ferðina og þá fræðslu sem þú miðlaðir til barnanna. Hún náði vel til þeirra og umræða þeirra um ferðina hefur súist um nokkra þætti, svo sem nafla Reykjavíkur, Alþingisgarðinn, tréð sem var 120 ára, að sjórinn hafi náð alveg að húsunum og fólkið hafi farið í bað þegar flæddi að. Einnig tala þau um Sægreifann og skrítnu fískana hans.

Takk kærlega fyrir fróðlegan og skemmtilegan dag!

Börn og starfsfólk Mánakots á leikskólanum Sjónarhóli

 
Þetta var flott!

 


.... eftir gönguferð yljuðum við okkur yfir góðum mat á Horninu, síðan fórum við og hlustuðum á jazz á Rósenberg. Þetta var flott. Þakk enn og aftur!

Ingibjörg

 
Gleðisveiflan verður gerð að föstum lið

Allir voru alsælir með ferðina. Gleðisveiflan verður gerð að föstum lið hjá Hjartverjum!

Þakk fyrir frábæra ferð, starfsfólk Hjartaverndar

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 3
Menningarfylgd Birnu    birna@birna.is    s:862 8031