English (United Kingdom) Icelandic(IS)
Bergstaðastræti að sumarlagi.

Hvítur köttur leggur í ævintýraför.

Einn af hverfisköttunum.

Hallgrímskirkja gnæfir yfir Skólavörðustígnum.

Í sólskini eru ekki allir kettir eins á lit.

Kötturinn hugsar sitt - og við fylgjum!

Gengið um Óðinsgötu að sumarlagi.

Menningarnótt 2003 - fjöldi í menningargöngu.

Staldrað við á Nönnugötu.

Ungir sem aldnir fylgjast með af athygli.

...Taktu köttinn til fyrirmyndar - lentu standandi!...

Athugasemdir gesta
Sérstakt göngulag leiðsögumanns
Okkur hjá Ungmennafélagi Íslands þótti mjög gaman að kynnast Reykjavík á nýjan hátt og sjá staði sem við höfðum ekki séð áður. Göngulag leiðsögumanns þótti einhverjum afar sérstakt og skemmtilegt. Það gaf til kynna að þar fari manneskja sem er ekki hrædd við neitt .....
 
Nýtt sjónarhorn fyrir erlenda gesti

Hópurinn var mjög ánægður með gönguna. Þau hafa öll komið nokkrum sinnum áður til Reykjavíkur og skoðað sig um í miðbænum, en höfðu á orði hve skemmtilegt hefði verið að kynnst borginni út frá þessu nýja sjónarhorni.

Björg, alþjóðadeid Íslandspósts

 
Þótt það blási - þótt það ....

Sæl Birna og þakk fyrir síðast

Þrátt fyrir kuldann og trekkinn var gangan einstaklega skemmtileg. Ekki var verra að fá súpuna á eftir sem yljaði sannarlega!

Þakk fyrir mig!

Ásta

 
Vestmannaeyjadömur í menningarreisu

Menningarferð okkar var ákaflega vel heppnuð. Fyrir utan gönguna með Birnu heimsóttum við kaffihús og steikhús, fórum í baðstofuna í LaugumSpa og í kokteil, sáum Edith Piaff og skoðuðum Þjóðminjasafnið. Þar að auki var samveran í sjálfu sér heilt prógram.

Það er samdóma álit þeirra sem ég hef spurt að gangan hafi verið einn af hápunktum ferðarinnar. Leiðsögumaðurinn fróður, sagði skemmtilega frá og tengdi vel saman gamla tímann og daginn í dag. Þarna uppgötvuðu sumar nýjar götur og sáu höfuðborgina í nýju samhengi. Það er frábært að eiga kost á slíkri leiðsögn í henni Reykjavík, því hún er ekki öll þar sem hún er séð!

Þakk fyrir okkur!

Guðný

 
Hálffrosnir gigtlæknar

Kæra Birna

Mikið þökkum við gigtlæknar vel fyrir skemmtilega göngu, það hafa allir komið að máli við mig og þakkað fyrir. Meira að segja þeir sem "frusu" eru búnir að ná sér og eiga bara skemmtilega minningu frá þessu rölti.

Við eigum svo eftir efri hluta Þingholtsins síðar!

 

Með góðum kveðjum

Björn

 
Ánægðar Aþenukonur

Við vorum allar mjög ánægðar með gönguferðina, gaman að upplifa höfuðborgina á annan hátt en venjulega.

Úr bréfi frá kvennaklúbbnum Aþenu

 
Eftir Menningarnótt 2004 - þakkir fyrir fræðslu- og skemmtigöngu

Ágæta Birna

Þakkir skalt þú hafa frá mér og minni ektakvinnu fyrir frábæra og skemmtilega samveru í fræðslu- og skemmtigöngu um Skólavörðuhæðina og niður í Þingholt. Streitulaust fas þitt og léttur húmor á réttum stöðum gerði okkur þessa stund einkar ánægjulega.

Reykvíkingur er ég í húð og hár og man þá tíð þegar beljurnar í Grettisgötufjósinu voru reknar Bergstaðastrætið á leið í Vatnsmýrina og heim að kveldi. Ég er fæddur og uppalinn á Brennulóð nr. 12 við Bergstaðastræti og þekki vel til flestra staðhátt í Þingholtum og á Holtinu, ef frá er skilið gamla braggahverfið á hæðinni, sem nú er blessunarlega löngu horfið.

Tilvist bakgarðsins hjá Ófeigi og Hildi var frábær uppgötvun okkur til handa, innlegg virðingarvert af þinni hálfu og húsráðenda. Við vonum að þú haldir áfram göngu þinni, fólki til fróðleiks og skemmtunar.

Halldóra Jóhannsdóttir og Einar Gíslason, Hafnarfirði

 
Upplifði mig sem gest í ókunnri borg

Blessuð Birna

... Ég upplifði mig sem gest í ókunnri borg, átti ég þó heima á þessum slóðum um árabil. Það var svo ótrúlega margt sem ég ekki vissi um gamla hverfið mitt. Það rifjaðist upp fyrir mér hvað það var alltaf gott skjól í þessum þröngu götum.
Sjálf ólst ég upp í Skuggahverfinu, gekk í Miðbæjarskólann og skottaðist því um þessar götur sem krakki. En leiðsögn þín var heilmikil viðbót, t.d. vissi ég ekki að Gerður Helga hefði átt heima þarna og Nína Tryggva, eins var gaman að vera bent á húsið sem Jón Leifs bjó í og svo mætti áfram telja.
Vel að merkja: Ég alveg staðráðin í að fá mér fisk í Fiskbúðinni á næstunni!

Úr bréfi frá gesti

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Síða 2 af 3
Menningarfylgd Birnu    birna@birna.is    s:862 8031